Sameiginlegt Vísindaþing 2024

Hilton Reykjavík Nordica
12. apríl 2024

Skurðlæknafélags Íslands
Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands
Félags íslenskra fæðinga og kvensjúkdómalækna
Fagdeildar svæfingahjúkrunarfræðinga
Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga
Fagdeildar gjörgæsluhjúkrunarfræðinga
Fagráð hjúkrunar og aðgerðasjúklinga

Sameiginlegt vísindaþing ofangreindra félaga verður haldið föstudaginn 12. apríl 2024 á Hilton hóteli.

Dagskráin verður að vanda fjölbreytt með sameiginlegum fyrirlestrum fyrir hádegi og eftir hádegi mun hvert félag stýra málstofum tengdum sínu sviði.

Kynning vísindaágripa verður að vanda mikilvægur hluti þingsins. Þetta verður frábært tækifæri, ekki síst fyrir unga vísindamenn, til að kynna sínar niðurstöður.

Fyrir hönd fagfélaganna
Elsa Björk Valsdóttir
formaður skurðlæknafélags Íslands